Nokia 3300 - UMHIRÃA OG VIÃHALD

background image

UMHIRÐA OG VIÐHALD

Í símanum fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með.
Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að uppfylla skilmála ábyrgðarinnar og geta stuðlað
að betri endingu.

Geyma skal símann og alla fylgihluti hans þar sem börn ná ekki til.

Halda skal símanum þurrum. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið steinefni
sem tæra rafrásirnar.

Ekki má nota símann á rykugum og óhreinum stöðum né geyma hann þar. Færanlegu
hlutirnir í honum geta skemmst.

Ekki má geyma símann á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu
rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.

Ekki má geyma símann í miklum kulda. Þegar síminn hitnar (upp að eðlilegu hitastigi)
getur raki myndast innan í símanum og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna símann. Meðhöndlun viðvaninga gæti skemmt símann.

Símanum má ekki henda, ekki má banka í hann eða hrista hann. Óvarleg meðferð
skemmt innri rafrásarspjöld.

Ekki má nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa
símann.

Ekki má mála símann. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg
fyrir að þeir vinni rétt.

Aðeins má nota loftnetið sem fylgir með símanum eða samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt
loftnet, breytingar á því eða viðbætur, gætu skemmt símann og kunna að brjóta í bága
við ákvæði laga um senditæki.

background image

Copyright

©

2003 Nokia. All rights reserved.

148

Allar ofangreindar ábendingar eiga jafnt við símann, rafhlöðuna, hleðslutækið eða annan
fylgibúnað. Ef einhver þessara hluta vinnur ekki rétt skal leita til næsta viðurkennda
þjónustuaðila og starfsfólk þar aðstoðar notandann og sér um viðgerð ef þörf krefur.

background image

MIKILVÆGAR ÖRYGGISUPPLÝSINGAR

149

Copyright

©

2003 Nokia. All rights reserved.