Nokia 3300 - Hle²sla og afhle²sla

background image

Hleðsla og afhleðsla

Síminn gengur fyrir rafhlöðu sem hægt er að endurhlaða.

Hafa ber hugfast að rafhlaða nær ekki fullum afköstum fyrr en hún hefur verið hlaðin og
afhlaðin tvisvar til þrisvar sinnum!

Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún
gengur úr sér. Þegar vinnslutími (taltími og biðtími) er orðinn áberandi stuttur er tímabært
að kaupa nýja rafhlöðu.

Aðeins má nota rafhlöður sem samþykktar eru af framleiðanda símans og aðeins má
endurhlaða rafhlöðu með hleðslutækjum sem framleiðandinn hefur samþykkt. Taka skal
hleðslutækið úr sambandi þegar það er ekki í notkun. Óráðlegt er að rafhlaða sé tengd
hleðslutæki lengur en vikutíma þar sem ofhleðsla getur stytt endingartíma hennar.
Fullhlaðin rafhlaða afhleðst sjálfkrafa með tímanum ef hún er ekki í notkun.

Sveiflur í hitastigi geta haft áhrif á hleðslugetu rafhlöðunnar.

Aðeins má nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð.

Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu.

Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni. Skammhlaup getur orðið fyrir slysni
þegar málmhlutur (mynt, bréfaklemma eða penni) veldur beinni tengingu milli + og -
skautanna á rafhlöðunni (málmrandanna á rafhlöðunni), til dæmis þegar vararafhlaða er
höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli skautanna getur valdið skemmdum á rafhlöðunni
eða hlutnum sem veldur tengingunni.

background image

Copyright

©

2003 Nokia. All rights reserved.

146

Ef rafhlaðan er skilin eftir í miklum hitum eða kuldum, til dæmis í lokuðum bíl að sumar- eða
vetrarlagi, dregur það úr afkastagetu hennar og endingu. Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf
höfð í hita á bilinu frá 15 °C til 25 °C. Sími með of heitri eða of kaldri rafhlöðu getur orðið
óvirkur um tíma, þó svo að rafhlaðan sé fullhlaðin. Einkum hefur mikið frost áhrif á
rafhlöður.

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld!

Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundnar reglugerðir (t.d. endurvinnslu). Ekki má
fleygja þeim með heimilisúrgangi.

background image

UMHIRÐA OG VIÐHALD

147

Copyright

©

2003 Nokia. All rights reserved.