Nokia 3300 - ÖRYGGISATRIÃI

background image

ÖRYGGISATRIÐI

Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Brot á reglum kann að vera hættulegt og getur varðað
við lög. Nánari upplýsingar er að finna í handbókinni.

Ekki má kveikja á símanum þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð eða þar
sem hún kann að valda truflunum eða hættu.

UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR

Ekki má nota handsíma við akstur.

TRUFLUN

Allir þráðlausir símar geta orðið fyrir truflunum sem hafa áhrif á notagildi þeirra.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á SJÚKRASTOFNUNUM

Fylgja ber öllum settum reglum. Slökkva skal á símanum nálægt
lækningabúnaði.

HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í FLUGVÉLUM

Þráðlaus tæki geta valdið truflunum í flugvélum.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN ELDSNEYTI ER TEKIÐ

Ekki má nota símann nærri eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við eldsneyti
eða sterk efni.

SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM VERIÐ ER AÐ SPRENGJA

Ekki má nota símann þar sem verið er að sprengja. Virða skal takmarkanir og fara
að settum reglum.

background image

ÖRYGGISATRIÐI

11

Copyright

©

2003 Nokia. All rights reserved.

NOTIST AF SKYNSEMI

Notist aðeins í hefðbundinni stöðu. Forðast skal óþarfa snertingu við loftnetið.

VIÐURKENND ÞJÓNUSTA

Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við símabúnað.

FYLGIHLUTIR OG RAFHLÖÐUR

Aðeins má nota samþykkta fylgihluti og rafhlöður. Ekki má tengja saman
ósamhæf tæki.

TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI

Þegar síminn er tengdur öðru tæki skal lesa notendahandbók með því vandlega,
einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.

ÖRYGGISAFRIT

Brýnt er að búa til öryggisafrit af öllum mikilvægum gögnum.

VATNSHELDNI

Síminn er ekki vatnsheldur. Halda skal símanum þurrum.

HRINGING

Tryggja skal að kveikt sé á símanum og hann sé virkur. Símanúmerið ásamt
svæðisnúmeri er fært inn og síðan er stutt á

. Stutt er á

til að ljúka

símtali. Stutt er á

til að svara hringingu.

NEYÐARHRINGINGAR

Tryggja skal að kveikt sé á símanum og hann sé virkur. Tengisnúran er tekin úr
sambandi við símann, ef hún er tengd. Stutt er á

eins oft og þörf krefur

(t.d. til að slíta símtali eða hætta í valmynd o.s.frv.) til að hreinsa skjáinn.
Neyðarnúmerið er valið og síðan er stutt á

. Gefa skal upp staðarákvörðun.

Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnum fyrirmælum þess efnis.

background image

Copyright

©

2003 Nokia. All rights reserved.

12

Um símann

Hlíta skal öllum lögum og virða einkalíf og lögbundin réttindi annarra við alla notkun þessa
tækis.

Viðvörun: Kveikt þarf að vera á símanum svo hægt sé að nota allar aðgerðir aðrar
en vekjara. Ekki má kveikja á símanum þar sem notkun þráðlausra síma getur
valdið truflunum eða hættu.

Símkerfisþjónusta

Þráðlausi síminn sem lýst er í handbókinni er samþykktur til notkunar á EGSM 900- og
GSM 1800-netum.

Tveggja banda virkni fer eftir símkerfinu. Leita skal til þjónustuveitu ef áskrift að slíkri
þjónustu er í boði og hægt er að nota hana.

Nokkrir eiginleikanna sem lýst er í þessari handbók eru kallaðir símkerfisþjónusta. Þetta er
sérstök þjónusta sem hægt er að panta hjá þjónustuveitu. Slíka þjónustu er aðeins hægt að
nýta sér að fenginni áskrift hjá þjónustuveitu á staðnum sem einnig veitir upplýsingar um
notkun hennar.

Til athugunar: Sum símkerfi styðja ekki alla séríslenska bókstafi og/eða þjónustu.

background image

ÖRYGGISATRIÐI

13

Copyright

©

2003 Nokia. All rights reserved.

Um tengibúnað

Huga þarf að gerðarnúmeri á hleðslutæki áður en það er notað með þessu tæki. Þetta tæki er
ætlað til notkunar við rafstraum ACP-7 og ACP-12.

Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og fylgihluti sem framleiðandi
símans hefur samþykkt til nota með tiltekinni tegund síma. Ef notaðar eru aðrar
gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki sem fylgir símanum fallið niður og slíkri
notkun getur fylgt hætta.

Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega fylgihluti sem samþykktir eru til
notkunar með símanum.

Þegar fylgihlutur er tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.

background image

Copyright

©

2003 Nokia. All rights reserved.

14